Ævintýri á hestbaki

Nýtt og spennandi: Sumarnámskeið 2012:

Reiðskóli Gusts og Víkingahesta hefur nú sitt fyrsta starfsár á nýju félgassvæði Gusts við Heimsenda í Kópavogi. Boðið verður upp á hálfs dags námskeið fyrir 7-15  ára, eina viku í senn í sumar.  Nánari upplýsingar og skráning í síma 660-9590. Sjá nánar hér að ofan í: Reiðskóli.

________________

Upplifðu hestaævintýri með Víkingahestum

Víkingahestar ehf bjóða hestatengda ferðaþjónustu, klippikort, reiðskóla og hestaleigu frá miðstöð Vikingahesta, Heimsenda 3 í Kópavogi.

Við leggjum okkur fram við að bjóða fjölbreytta valkosti fyrir fyrir börn, einstaklinga, fjölskyldur og hópa sem hafa áhuga á að bregða sér á bak eða taka fyrstu skrefin í hestamennsku. Við leggjum áherslu á litla hópa og persónulega þjónustu. Kynntu þér hvað er í boði og við tökum vel á móti þér.

Opið daglega allt árið um kring

  • Við leggjum áherslu á að þjónusta einstaklinga og litla hópa og eru aldrei fleiri en tíu manns í hverjum hóp.
  • Góð persónuleg þjónusta: Í smærri hópum er auðveldara að veita góða og persónulega þjónusta sem er sniðin að þörfum hvers og eins.
  • Góðir og traustir hestar sem auðvelt er að láta tölta.
  • Fallegar reiðleiðir um Heiðmörk og Elliðavatn, steinsnar frá höfuðborginni.

Markmið okkar er að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti okkar og þeir fari frá okkur með bros á vör og ljúfar minningar í farteskinu. Liður í því er að bjóða: hámarksfjölda þátttakenda, góða hesta, fallegar reiðleiðir, faglegt starfsfólk og góða aðstöðu.

Kaffihúsið Hrímfaxi: Í húsnæði Víkingahesta er rekið Kaffihúsið Hrímfaxi þar sem boðið er upp á ýmsar veitingar; svo sem kjötsúpu, heimabakað brauð, flatkökur og vöfflur og annað góðgæti. Hrímfaxi er með vínveitingaleyfi og getur tekið á móti smærri hópum. Eins má nefna að starfsfólk Víkingahesta tekur að sér að skipuleggja hópefli í bland við reiðtúra og gefur aðstaða og umhverfi í og við miðstöð Víkingahesta marga skemmtilega möguleika á slíku.

 

Staðsetning: Við erum staðsett í hesthúsahverfinu Heimsenda, fyrir aftan Knattspyrnuhúsið Kórinn.


View larger map